Styttri útgáfan:

Ég heiti Árni Jóhannsson og er fæddur á því herrans ári 1978, uppalinn í Kópavogi, bjó um tíma í Kanaríkjunum, eitt sumar í Þýskalandinu, nokkur ár í Reykjavík, en er nú fluttur aftur "heim" í Kópavoginn.

Ég er giftur henni , en við erum svo lukkuleg að eiga tvær yndislegastu stelpurnar í þessu heimi :), fimm ára stúlku sem hlaut nafnið og eina tveggja sem heitir . Nýlega bættist svo fyrsti strákurinn í hópinn og hlaut hann nafnið .



Lengri útgáfan:

Fyrsta ár ævi minnar bjó ég í Hafnarfirði, í götu sem heitir Sléttahraun...
Þaðan flutti ég rétt rúmlega eins árs gamall og einum bróður ríkari...
Foreldrar mínir ákváðu að Kópavogurinn væri málið... og fundu stórt og fallegt hús í Löngubrekkunni (þar sem þau búa enn...)

Fyrsti leikskólinn minn hét Kópasteinn... og í honum eyddi ég 3 árum... eða alveg þangað til foreldrar mínir ákváðu að kanaríkinn væru málið...

Fyrsti viðkomustaðurinn var Shoreline, sem er í raun úthverfi Seattle, þar sem pabbi fór í Shoreline Community College í eitt ár... og ég hóf skólagönguna mína í Highland Terrace grunnskólanum...

Þaðan lá leiðinn inn í miðja Seattle þar sem ég skipti um skóla og fór í Coe elementery school meðan foreldrar mínir skelltu sér í Seattle Pacific Univercity, eða SPU (borið fram spjú) eins og hann heitir svo fallega...

1987 þegar ég var rétt að verða 9 ára ákváðu foreldrar mínir svo að útskrifast og flytja aftur heim á skerið...
Þá hóf ég nám í 3.ja bekk í Kópavogsskóla, þaðan sem ég lauk síðan grunnskóla-/sæmræmdum prófum árið 1994...

Að grunnskóla loknum hélt ég í hinn sögufræga Verslunnarskóla Íslands, en sökum þess að ég skemmti mér ekki alveg nógu vel það árið ákvað ég að skipta um skóla eftir fyrsta árið og fara aftur heim í Kópavoginn í MK...

Ég gæti skrifað heila nýja síðu um árin í MK... en ég sleppi því í bili :)

Síðan ég lauk menntaskólanum fyrir næstum 7 árum síðan hef ég gert alveg fullt af skemmtilegum hlutum...
Meðal annars eignast 2 yndislegar dætur, þær Perlu Rós og Urði Ósk með minni yndislegu eiginkonu... Misst nokkur hár, fundið nokkur kíló, unnið ýmsar vinnur og yfir höfuð haft það gott...

Jæja nóg í bili...

síðast breytt 06.02.2008

ich bin ein berliner!!!